Netið

NETIÐ gerði á árunum 1997-98 stóra rannsókn á ímynd Íslands erlendis þar sem meðal annars voru tekin viðtöl við 15 íslensk fyrirtæki og stofnanir, 5 dönsk og sænsk fyrirtæki og 600 neytendur í þessum löndum.

Mörg fyrirtæki og stofnanir fjárfestu í rannsókninni á sínum tíma ma. Icelandair, SH, Útflutningsráð og nokkur ráðuneyti.  Einnig voru fyrirlestrar haldnir fyrir nokkra aðila s.s. Útflutningsráð.

Við höfum gert viðbótarkannanir um efnið frá upphaflegri rannsókn meðal annars um ímynd Reykjavíkur og Íslands og spurt þar meðal annars starfsmenn í gestamóttökum hótela og upplýsingaþjónusta. Niðurstöðurnar eru í "bókinni" sem gefin var út um efnið en hún er alls um 120 síður auk viðauka.
Í stefnumótunartillögunum 1998 var stofnun Vatnajökulsþjóðgarðar meðal annars lagt til.

Greinar um efnið:

  Ímynd Íslands og Reykjavíkur síðari grein úr Morgunblaðinu - stefnumótunartillögur 2006 (171 KB)
  Ímynd Íslands og Reykjavíkur fyrri grein Mbl. - kannanir 2004 (20 KB)


  Ímynd Íslands tillögur og stefnumótun 2001 - grein Mbl. (127 KB)


  Ímynd Íslands og íslenskrar vöru og þjónustu erlendis -  síðari grein Mbl. 1998(185 KB)
  Ímynd Íslands og íslenskrar vöru og þjónustu erlendis - fyrri grein Mbl. 1998 (51 KB)